JTVerk sérhæfir sig í nýbyggingum, viðhaldi og stjórnun framkvæmda. Fyrirtækið notar lausnir sem lágmarka pappírsnotkun, auka líkur á hagnaði og hafa bætt stjórnun verkefna.
JT Verk tók nýverið í gagnið nýja tækni í myndatökum á verkstað. Um er að ræða 360° myndatökur með þar til gerðri myndavél en úr verða yfirlitsmyndir á sama formi og Google Street View 360° myndirnar sem við þekkjum í dag.