JTverk logo

Vönduð vinnubrögð - aukið virði 

Byggingarverkefni fela í sér margar áskoranir. Þegar mikið er í húfi skiptir öllu máli að verkefninu sé stjórnað af öryggi með gæði og vönduð vinnubrögð að leiðarljósi. Hafir þú áhuga á að verkefni ljúki á réttum tíma og samkvæmt fjárhagsáætlun ert þú í góðum höndum hjá JT Verk.


Við sérhæfum okkur í verkefnastjórnun byggingarverkefna. Menntun og áratuga reynsla af öllum stigum ferlisins gerir verkefnastjóra okkar í stakk búna að mæta hverju verkefni þar sem það er statt og ljúka því farsællega.


Við erum pappírslaust fyrirtæki og notumst við rafrænt, miðlægt verkefnastjórnunartól sem gefur viðskiptavinum okkar góða yfirsýn yfir verkefnin, auk reglulegrar yfirferðar yfir stöðuna með verkefnastjóra. 


Um JT Verk

Vönduð vinnubrögð - aukið virði 

Byggingarverkefni fela í sér margar áskoranir. Þegar mikið er í húfi skiptir öllu máli að verkefninu sé stjórnað af öryggi með gæði og vönduð vinnubrögð að leiðarljósi. Hafir þú áhuga á að verkefni ljúki á réttum tíma og samkvæmt fjárhagsáætlun ert þú í góðum höndum hjá JT Verk.


Við sérhæfum okkur í verkefnastjórnun byggingaverkefna. Menntun og áratuga reynsla af öllum stigum ferlisins gerir verkefnastjóra okkar í stakk búna að mæta hverju verkefni þar sem það er statt og ljúka því farsællega.


Um JT Verk >

Verkefnastjórnun

Við sjáum um útboð á öllum verkþáttum til verktaka, metum tilboðin og hæfi fyrirtækjanna, gerum innkaupaáætlun, tímaáætlun og fjárhagsáætlun, höfum eftirlit með framkvæmdum og viðhöldum kostnaðarvitund í gegnum allt ferlið.


Byggingarstjórnun

Sem byggingastjórar verkefna erum við löglegir fulltrúar verkkaupans og störfum í umboði hans. Við gætum hagsmuna hans gagnvart byggingaryfirvöldum, hönnuðum, iðnmeisturum og öðrum sem að verkefnunum koma.


Hönnunarstjórnun

Við aðstoðum við útboð til arkitekta og hönnuða, stýrum hönnunarfundum, gerum hönnunaráætlun, rýnum í gögnin og gætum þess að þau standist reglur, höldum utan um skil á gögnum o.s.frv.


Ráðgjöf

Stjórnendur JT Verk veita alhliða ráðgjöf á öllum stigum framkvæmda en reynsla þeirra tryggir góða yfirsýn yfir stöðu verkefnisins, hvaða skref þurfi að taka næst og hvernig er best að skipuleggja þau fram í tímann.



360° myndatökur
25 Sep, 2023
JT Verk tók nýverið í gagnið nýja tækni í myndatökum á verkstað. Um er að ræða 360° myndatökur með þar til gerðri myndavél en úr verða yfirlitsmyndir á sama formi og Google Street View 360° myndirnar sem við þekkjum í dag.
25 Sep, 2023
Smárabíó Max verður til
25 Sep, 2023
Pappírslaus verkstaður eykur arðsemi fyrirtækja
Sjá fleiri fréttir

Vönduð kostnaðaráætlun skiptir máli

Miðvikudagur 12. febrúar 2020
Starfsmenn JT Verk hafa langa reynslu af hönnunar- og verkefnastjórnun ýmissa verkefna, minni og stærri. JT Verk stýrir verkinu frá hugmynd að framkvæmdalokum og veitir alhliða ráðgjöf.
Read more
Share by: